Nú hafa verið leiknir tveir leikir í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki karla. Fyrri leikurinn fór fram á Akureyri á föstudagskvöldið og lauk með sigri SA 3 - 2 og sá seinni fór fram í gærkvöldi í Laugardalnum og lauk einnig með sigri SA að þessu sinni 4 - 3. Báðir leikirnir voru gríðarlega spennandi frá upphafi til enda og hart barist frá fyrstu til síðustu mínútu.
Viðureignir þessara liða í vetur hafa undantekningalaust verið spennandi og skemmtilegar og úrslitakeppnin er þar engin undantekning. Á morgun fer svo fram þriðji leikurinn í rimmunni á Akureyri.
Það þarf sjálfsagt ekki að taka það fram að leikurinn á morgun verður viburður sem hokkíáhugafólk má ekki láta framhjá sér fara. Esjumenn eru komnir upp við vegg og munu leggja allt í sölurnar til að tryggja sér næsta leik í Reykjavík á fimmtudaginn og sömuleiðis eiga SA menn möguleika á að tryggja sér titilinn með sigri. Það verður því hart barist og bæði lið munu leggja allt í sölurnar. Leikurinn hefst kl. 19:45.
Meðfylgjandi mynd tók Elvar Pálsson í leik liðanna á föstudaginn á henni má sjá Sigurð Reynisson (SA) og gegn markverði Esju Daníel Jóhannssyni og varnarmanninum Daniel Kolar.