Hertz-deild karla heldur áfram. Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Skautafélagi Akureyrar í Skautahöllinni Laugardal, föstudaginn 14. október 2016. Leikurinn hefst að vanda kl 19:45 og má búast við æsispennandi leik. Nú er um að gera að skella sér á stórskemmtilegan leik í einni hröðustu íþrótt í heimi. Ollabúð opin þar sem hægt verður að fá sér kaffi og með því, aðgangseyrir kr 1.000.- Sjáumst í Skautahöllinni Laugardal, kl 19:45.