Maksymilian Jan Mojzyszek, 17ára markmaður Bjarnarins fór til Ostrava- Poruba Tékklandi fyrr í sumar og var þar í þjálfun hjá Petr Mrazek sem spilar með Detroit Red Wings og landsliði Tékklands. Hér eru upplýsingar um Petr Mrazek. Í þessum æfingabúðum voru um 20 drengir, aðallega frá mið og austur evrópu. Maksimilian fór einnig í sumar til Tychy í Póllandi í íshokkí æfingabúðir.
Þrátt fyrir að íshokkí liggi niður að mestu yfir sumarmánuðina á Íslandi, þá er talsvert um að okkar fólk fari í æfingabúðir erlendis og nái þar í frekari menntun í íshokkí. Þar á meðal er U18 hópur íslenskra kvenna nú í Helsinki í Finlandi og fáum við fréttir frá þeim næstu daga.