Leikur kvöldsins að þessu sinni er leik Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins í meistaraflokki karla. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst klukkan 20.00.
Heimamenn í SR hafa átt á brattann að sækja í allan vetur en margir ungir leikmenn félagsins hafa fengið eldskírnina þennan veturinn og sú reynsla mun reynast þeim vel þegar fram í sækir. Gestirnir í Birninum á hinn bóginn hafa mikla breidd og síðustu vikur hefur enn verið að bætast í leikmannahóp þeirra þar sem Gunnar Guðmundsson og Róbert Freyr Pálsson eru báðir komnir heim frá Danmörku til að leika með liðinu.
Mynd: Ómar Þór Edvardsson
HH