Fjölnir óskaði í vikunni eftir leikheimild fyrir Drew Barron sem á síðasta tímabili er hann lék með Fjölni fékk ótímabundin félagaskipti til Íslands.
Fjölnir hefur gengið frá greiðslu í samræmi við reglugerð númer 9, 5. gr. B. Þar sem Drew Barron er fjórði erlendi aðilinn sem Fjölnir óskar eftir leikleyfi fyrir. Því telst Drew Barron löglegur leikmaður á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Fjölni.