Landslið karla og kvenna munu vera með landsliðsæfingar um komandi helgi.
Staðsetning: Skautahöllin Laugardal
Föstudaginn 10. febrúar verða svo tveir leikir í Hertz-deild karla.
Landslið kvenna er að undirbúa sig undir heimsmeistaramót kvenna sem haldið verður á Akureyri 27. febrúar til 5. mars. Lokahópur landsliðsins hefur verið tilkynntur.
Landsliðshópur karla er að undirbúa sig undir heimsmeistaramót karla sem haldið verður í Galati, Rúmeníu 3. apríl til 9. apríl. Lokahópur landlsiðs karla verður tilkynntur innan skamms.
Landslið U18 er einnig í undirbúningi fyrir sitt heimsmeistaramót sem haldið verður í Novi Sad, Serbíu 13. mars til 20. mars næstkomandi.