Í þessum skrifuðu orðum stendur yfir opið kvennamót með þátttöku kvenna á öllum aldri. Mótið hófst í Laugardalnum í gærkvöld en var síðan framhaldið í Egilshöllinni í morgun. Líklega er um að ræða stærsta kvennamót sem hér hefur verið haldið.
Mótið er einnig tilvalið til þess að efla félagsandann milli þeirra kvenna sem æfa íshokkí á Íslandi þá er blandað í liðin úr öllum félögunum. Að spila mót af þessu tagi gefur nýliðum frábært tækifæri til þess að spila alvöru leiki með leikreyndari liðsmönnum og er því mikilvægur liður í framþróun íþróttarinnar. Dagskrá mótsins má
sjá hér og liðskipan
liðanna hér.
HH