Um helgina er fyrsta helgarmót vetrarins hjá 4.flokki og er það Skautafélag Reykjavíkur sem sér um mótið.
Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar senda tvö lið hvort á mótið og Björninn er með eitt lið.
Eigum við von á fjörugu og skemmtilegu móti í Skautahöllinni í Laugardal.
Allir eru velkomnir að koma og horfa á og styðja sitt lið.
Keppnin hefst á laugardagsmorgun kl 8:00 með leik SR og SA. Keppni líkur svo um hádegisbil á sunnudag.