ÍHÍ staðfestir leikheimildir fyrir SA

Skautafélag Akureyrar óskaði í vikunni eftir erlendum félagaskiptum og leikheimildum  fyrir eftirtalda leikmenn. 

Tyler Edward Sztrum fyrir mfl karla og 

Shawlee Jasmine Gaudreault fyrir mfl kvenna. Bæði koma þau frá Kanada, 

SA greiddi fyrir félagaskiptin samkvæmt regum ÍHÍ.  IIHF og Kanadíska íshokkísambandið hafa staðfest félagaskiptin og því hafa þessir einstaklingar hlotið leikleyfi og því teljast þeir löglegir leikmenn á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Akureyrar.