Það hefur verið mikið úrval af hokkímyndum síðustu vikurnar og enn bætist í sarpinn. Þeir sem vafra um síðuna hjá okkur hafa mjög líkalega rekist á myndaalbúmin tvö frá Kristjáni Maack en þar má sjá myndir úr öllum leikjum Íslands á síðasta HM. Þau má finna
hér og
hér.
Í vikunni barst okkur síðan tengill frá eistneska íshokkísambandiu
á myndir sem teknar voru á verðlaunaafhendingunni en þar voru okkar menn í verðskulduðu hlutverki.
Að lokum má benda á að komnar eru inn myndir frá NIAC-kvennamótinu sem Sigurgeir Haraldsson tók en mótið fór fram í byrjun apríl. Albúmið má finna
hér.
Myndina tók Kristján Maack.
HH