Segja má að þessa hokkíhelgina verði hringnum lokað hvað meistaraflokk karla áhrærir. Þ.e. að loknum leikjum helgarinnar hafa öll liðin í deildinni mæst einusinni. Um helgina hefst einnig keppni í þriðja flokki en þetta tímabilið verður flokkurinn spilaður í stökum leikjum en ekki helgarmótum einsog undanfarin ár.
Fyrsti leikur helgarinnar er leikur Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins í meistaraflokki karla. Leikurinn fer fram í Laugardalnum í kvöld og hefst klukkan 19.45. Bæði lið töpuðu sínum síðasta leik. Heimamenn í SR töpuðu sínum síðasta leik gegn SA fyrir norðan sl. þriðjudag en liðið virðist þó vera smátt og smátt að stíga upp eftir mögur ár. Bjarnarmenn á hinn bóginn byrjuðu vel gegn norðanmönnum en fengu síðan nokkurn skell gegn Esju sl. þriðjudag. Stigin þrjú sem í boði eru skipta því töluverðu máli um hvort liðið heldur sig nálægt toppnum.
Síðari leikurinn í meistaraflokki karla er leikur UMFK Esju og Skautafélags Akureyrar og fer hann einnig fram í Laugardalnum á morgun, laugardag, og hefst klukkan 18.45. Einsog kom fram í frétt hérna hjá okkur í gær hefur Esju borist liðsauki í tveimur kanadamönnum. Liðið hefur verið frekar fámennt í vörninni og er þeim ætlað að bæta úr því. Einsog kom fram hér fyrr í fréttinni náðu Esja góðum sigri gegn Birninum fyrr í vikunni sem ætti að gefa þeim byr undir báða vængi. Gestirnir að norðan náðu líka sigri í sínum síðasta leik og þó hópurinn hjá þeim sé ekki stór þá er í honum mikil reynsla.
Í Egilshöllinni mætast síðan Björninn og SA í 3. flokki karla og hefst sá leikur klukkan 18.35 Þar er á ferðinni framtíðin í íslensku hokkíi en einsog áður sagði verðurð flokkurinn leikinn í einstaka leikjum þetta tímabilið.
Mynd: Elvar Freyr Pálsson
HH