Hokkíhelgin að þessu sinni er að mestu leyti undirlögð að af landsliðum Íslands þessa helgina með einni undantekningu þó.
Fyrst ber að nefna leik Ásynja og Skautafélags Reykjavíkur í meistaraflokki kvenna. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni á Akureyri á morgun laugardag og hefst klukkan 17.30. Um er að ræða frestaðan leik frá síðasta ári. Í kringum þennan leik hefur síðan verið komið fyrir æfingabúðum kvennalandsliðsins en stelpurnar undirbúa sig nú að kappi fyrir heimsmeistaramótið í II. deild sem haldið verður í Puigcerda á Spáni í byrjun apríl. Dagskrá æfingabúðanna má finna hér.
Aðrir leikir helgarinnar eru tveir leiki U20 ára landsliðs Íslands en liðið hefur á morgun leik í 2. deild b-riðils á heimsmeistaramóti Alþjóða Íshokkísambandsins. Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn Belgum og hefst hann klukkan 12.00 að íslenskum tíma. Á sunnudaginn leikur liðið síðan gegn Áströlum og hefst sá leikur einnig klukkan 12.00 Áhugasömum er bent á að hér hægra meginn á síðunni okkar er tengill á keppnina þar sem fylgjast má með textalýsingu frá leikjunum.
Mynd: Ómar Þór Edvardsson
HH