Á þingi Alþjóða Íshokkísambandsins sem fram fór í Stokkhólmi í liðinni viku var gengið frá hvar HM-mót sem íslensku landsliðin taka þátt í fara fram.
Karlaliðið mun leika í II. deild a-riðils, en sú keppni fer fram í Belgrad eða Novi Sad í Serbíu dagana 9-15 apríl 2014
Ásamt íslendingum verða í riðlinum lið frá Eistlandi, Belgíu, Ástralíu Serbíu og Ísrael.
Kvennaliðið mun leika í II deild b-riðils og fer sú keppni fram í Reykjavík dagana 24-30 mars 2014
Ásamt íslendingum verða í riðlinum Slóvenia, Spánn, Króatía, Belgía og Tyrkland.
U20 ára liðið mun leika í II. deild b-riðils en sú keppni fer fram í Jaca á Spáni dagana 11-17 janúar 2014
Ásamt íslendingum verða í riðlinum lið frá Spáni, Kóreu, Serbíu, Ástralíu og Kína.
U18 ára liðið mun leika í II. deild b-riðils en sú keppni fer fram í Tallinn í Eistlandi dagana 13-19 apríl 2014
Ásamt íslendingum verða í riðlinum lið frá Eistlandi, Spáni, Serbíu, Belgíu og Kína.
HH