Í dag var stór dagur fyrir íslenskt íshokkí þegar Ísland lagði Spán í fyrsta skiptið með sannfærandi 6 – 3 sigri hér á HM í Zagreb. Eftir að hafa fylgst með spænska liðinu hér á þessu móti þá var okkur ljóst að við ættum góða möguleika gegn þeim. Leikurinn var mjög jafn og spennandi þrátt fyrir þriggja marka mun, en leikurinn hrundi hjá þeim spænsku á lokamínútunum. Björn Sigurðsson og Orri Blöndal skoruðu sín fyrstu mörk fyrir karlalið í þessum leik og í leikslok var Ólafur Björnsson valinn besti leikmaður íslenska liðsins.
Það er stórt skref í rétta átt að leggja Spánverja að velli en þeir hafa verið okkar mótherjar á fjölmörgum mótum í gegnum tíðina. Reyndar hefur þeim gengið mjög illa á þessu móti og þrátt fyrir að einn leikur sé eftir þá er ljóst að þeir eru fallnir niður í B-riðil. Það var staðest í gær þegar Ástralir komu á óvart og lögðu Belga 3 – 1.
Í dag er svo síðasti keppnisdagur og þá mætum við Serbíu í úrslitaleik um 3. sætið. Leikurinn hefst á íslenskum tíma kl. 14:30 – Áfram Ísland!