Hertz-deild kvenna hefst á Akureyri, laugardaginn 24. september, með leik Ynja og SR. Um er að ræða fyrsta leik Hertz-deildar kvenna. Leikurinn fer fram um kl 19, eða strax á eftir leik meistaraflokks karla sem hefst kl 16:30. Sá leikur er á milil SA Víkinga og SR.
Skautafélag Akureyrar hefur undanfarið endurnýjað nánast allt innandyra hjá sér í Skautahöllinni. Búið að mála allt í hólf og gólf, ný gólfefni alls staðar, búið að endurnýja botnplötu hússins, og nýr rammi er kominn. Verður því frábært að koma og horfa á leiki hjá SA í vetur. Innilega til hamingju með framkvæmdir sumarsins.