Tveir leikir í Hertz-deild karla verða laugardaginn 4. febrúar.
Egilshöll kl 16:45 Björninn - Esja
Skautahöllin á Akureyri SA-SR kl 16:30
Það liggur mikið við, nú þegar á seinni helmings mótsins er komið. Staðan í deildinni er æsispennandi og allt getur gerst.
Nú er um að gera að skella sér á leik og taka alla fjölskylduna með. Kaffi og meðlæti, góða skapið og ein hraðasta og svalasta íþrótt í heimi á boðstólnum.
Minnum á streymi frá báðum leikjum sem finna má á heimasíðu IHI.