Skautafélag Hafnarfjarðar óskaði í vikunni eftir félagaskiptum og leikheimildum fyrir eftirtalda leikmenn.
Ómar Freyr Söndruson
Ævar Arngrímsson
Gabríel Camilo Gunnlaugsson Sarabia
Heiðar Örn Kristveigarson
Benedikt Bjartur Olgeirsson
Ólafur Hrafn Björnsson
Styrmir Steinn Maack
Félagið sem leikmennirnir koma frá hefur staðfest skuldleysi þeirra. því hafa þessir einstaklingar hlotið leikleyfi og því teljast þeir löglegir leikmenn á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Hafnarfjarðar.
Erlend félagaskipti
KOTASEK Alex frá Tékklandi
HAAS Radek frá Tékklandi
Bæði IIHF og Tékkneska sambandið hafa samþykkt félagaskiptin. Ofantaldir erlendir leikmenn hafa því hlotið leikleyfi og því teljast þeir löglegir leikmenn á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Hafnarfjarðar.