Skautafélag Reykjavíkur lagði UMFK Esju að velli á íslandsmóti karla með 5 mörkum gegn fjórum í hörkuspennandi leik sem fram fór síðastaliðið föstudagskvöld. Þetta er annar sigur SR-inga á tímabilinu en báðir hafa sigrarnir komið gegn Esju. SR-ingar höfðu frumkvæðið í leiknum framanaf hvað markaskorun varðaði en staðan að lokinni fyrstu lotu var 3 - 1 þeim i hag. Eftir um sex mínútna leik í annarri lotu fengu SR-ingar dæmt víti og úr því skoraði Robbie Sigurðsson og staða þeirra orðin ansi vænleg. Esju menn náðu að minnka muninn fyrir þremur mínútum fyrir lotulok. Lokaorð lotunnar áttu SR-ingar þegar Tómas Tjörvi Ómarsson skoraði þegar tveir Esjuleikmenn tóku út refsingu og staðan því 5 – 2 að lokinni annarri lotu.
Lengi vel leit út fyrir að þetta yrðu úrslit leiksins en á síðustu tveimur mínútunum náðu leikmenn Esju að minnka muninn í eitt mark. Lokasekúndurnar voru því æsispennandi en SR-ingar náðu að halda fengnum hlut.
Mörk/stoðsendingar UMFK Esja:
Egill Þormóðsson 1/2
Ólafur Hrafn Björnsson 1/1
Kole Bryce 1/0
Pétur Maack 1/0
Andri Þór Guðlaugsson 0/1
Refsingar UMFK Esju: 12 mínútur
Mörk/stoðsendingar SR:
Robbie Sigurðsson 2/1
Tómas Tjörvi Ómarsson 1/1
Jón Andri Óskarsson 1/0
Daníel Steinþór Magnússon 1/0
Victor Andersson 0/1
Viktor Örn Svavarsson 0/1
Miloslav Racansky 0/1
Mynd: Hafsteinn Snær
HH