Dómaranefnd Íshokkísambands Íslands (ÍHÍ) er tilbúin að halda dómaranámskeið fyrir leikmenn aðildarfélaga ÍHÍ.
Skráningarform fyrir dómaranámskeið má finna hér;
Námskeiðin verða amk tvö, eitt á Akureyri og annað í Reykjavík.
Allir leikmenn geta skráð sig og sérstaklega þeir sem eru hættir að keppa en vilja taka þátt í uppbyggingu íshokkí á Íslandi og taka þátt í dómgæslu leikja. ÍHÍ vantar sérstaklega eldri einstaklinga sem geta dæmt U20 og mfl karla og kvenna.
Allar aðrar upplýsingar verða veittar á skrifstofu ÍHÍ.