SR bar í gærkvöld sigurorð af Birninum með fjórum mörkum gegn þremur en leikur liðanna fór fram í Egilshöll.
Það voru SR-ingar sem höfðu undirtökin hvað markaskorun varðaði í fyrstu lotunni en á fjórðu mínútu kom Bjarki Reyr Jóhannesson þeim yfir og skömmu síðar bætti Daníel Steinþór Magnússon öðru marki fyrir gestina. Það sem eftir lifði lotu skiptust liðin á að sækja en fleiri mörk voru ekki skoruð.
Önnur lotan var hinsvegar æði fjörug en Guðmundur Þorsteinsson kom gestunum í þriggja marka forystu snemma í lotunni. Það sem eftir lifði lotunnar bættust við fjögur mörk sem öll komu þegar liðið sem skoraði hafði yfirtölu á ísnum. Björninn minnkaði muninn í 2 - 3 á stuttum kafla með mörkum frá Brynjari Bergmann og Aron Knútssyni. Skömmu eftir mark Arons bætti Tómas Tjörvi Ómarsson hinsvegar aftur í fyrir SR-inga. Nicolas Antonoff átti lokaorð lotunnar og reyndar lokaorð leiksins hvað markaskorun varðaði rétt fyrir lotulok því ekkert mark var skorað í þriðju og síðustu lotunni.
Mörk/stoðsendingar Björninn:
Brynjar Bergmann 1/1
Nicolas Antonoff 1/1
Aron Knútsson 1/0
Lars Foder 0/1
Refsingar Björninn: 2 mínútur
Mörk/stoðsendingar SR:
Bjarki Reyr Jóhannesson 1/0
Daníel Steinþór Magnússon 1/0
Guðmundur Þorsteinsson 1/0
Tómas Tjörvi Ómarsson 1/0
Arnþór Bjarnason 0/2
Miloslav Racansky 0/1
Daníel Hrafn Magnússon 0/1
Refsingar SR: 28 mínútur
Mynd: Hafsteinn Snær
HH