Nú fer hver að verða síðastur til að koma og horfa á íshokkí því um helgina fer fram síðasta mótið í mótaskrá ÍHÍ.
Mótið verður haldið í Laugardalnum en þar mætast börn í 5; 6. og 7. flokki. Að venju verður mikið fjör og mikið um góða takta hjá ungviðinu. Dagskrá mótsins má finna hér en einnig er hún hægra meginn á síðunni hjá okkur.
Mynd: Ásgrímur Ágústsson
HH