Í kvöld fór fram 2. leikur í úrslitum í kvennaflokki og að þessu sinnu unnu Ásynjur og jöfnuðu þar með úrslitaeinvígið eftir að Ynjur unnu fyrsta leikinn á laugardaginn síðasta. Leikurinn var gríðarlega spennandi frá upphafi til enda og leikurinn allur miklu harðari en fyrsti leikurinn. Ásynjur mættu ákveðnar til leiks og fóru mikinn í upphafi og skoruðu fyrsta mark leiksins. Ynjurnar svöruðu hins vegar með þremur mörkum fyrir lok lotunnar og allt virst stefna í sömu átt og í fyrsta leiknum.
Í 2. lotu komu Ásynjur til baka og jöfnuðu leikinn og þegar síðasta lotan hófst var staðan 3 - 3. Síðustu mínútur leiksins voru gríðarlega spennandi en sigurmarkið leit dagsins ljós á 57. mínútu og á síðustu mínútu leiksins bættu þær við 5. markinu. 5 - 3 sigur staðreynd og ljóst að nú þarf hreinan úrslitaleik til að skera úr um sigurvegara í einvíginu. Sá leikur fer fram á fimmtudaginn kl. 19:30 og ljóst að loftið verður rafmagnað sem aldrei fyrr í Skautahöllinni á Akureyri.
Til marks um baráttu og jafnræði liðanna þá má geta þess að bæði lið nýttu sér liðsmun í leiknum, þ.e.a.s. skoruðu "power play" mörk og það sem meira er þá skoruðu bæðið lið þegar þau voru einum leikmanni færri, svo kölluð "short handed" mörk.
Guðrún Viðarsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Ásynjur og þær Guðrún Blöndal, Arndís Eggerz og Thelma Guðmundsdóttir eitt mark hver. Fyrir Ynjur skorði Silvía Björgvinsdóttir öll mörkin og öll í fyrstu lotunni.