Um helgina fór fram á Akureyri bikarmót Íshokkísambands Íslands fyrir aldurshóp U14. Skautafélag Akureyrar var framkvæmdaraðili mótsins og tók á móti liðum frá SR og Fjölni.
Veitingastaðurinn Greifinn á Akureyri kom að þessu móti og fengu þátttakendur mótsins að gæða sér á ljúffengum pizzum að hætti Greifans.
Allir þátttakendur stóðu sig vel á mótinu og lið íshokkídeildar Fjölnis, Björninn, stóðu uppi sem sigurvegarar.