A-landslið kvenna mætir UPIE Panthers í dag kl.17:15

Um nýliðna helgi voru A og U18 landslið kvenna með æfingabúðir í Skautahöllinni Akureyri undi diggri stjórn Jóns Benedikts Gíslasonar, Kim McCullough, Silvíu Björgvinsdóttur og Alexöndru Hafsteinsdóttur.  Í gær lék A-landslið kvenna við lið UPEI Panthers frá Charlottetown, Prince Edward Island, í Kanada og munu liðin mætast aftur í dag kl.17:15 í Skautahöllinni í Laugardal.

Leikurinn í gær var hraður og skemmtilegur á að horfa en þær kanadísku hafa verið í evrópuferð um Holland og Belgíu undanfarna viku og ákváðu að stoppa við hér á Íslandi á heimleið sinni og spila tvo leiki við A-landslið kvenna.

Leikurinn í gær fór 2 - 1 fyrir gestunum og er því von á að leikurinn í dag verði engu minna spennandi.

Streymt verður frá leiknum í dag á Youtube-síðu ÍHÍ