20.02.2006
Tveir leikir fóru fram í Íslandsmóti 2. flokks um helgina. Fyrri leikurinn fór fram á laugardaginn á milli SR og SA og lauk þeim með sigri SA með 5 mörkum gegn 1. Á sunnudaginn mættust svo Björninn og SA og þann leik unnu heimamenn með 10 mörkum gegn 3. Næsti leikur í 2. flokki verða 28. þessa mánaðar en þá mætast Björninn og SR í Egilshöll. Helgina 4. og 5. mars fara svo bæði sunnanliðin norður etja kappi við SA.