Nú hefur Alþjóða íshokkísambandið (IIHF)
gefið út styrkleikaröðun á hluta þeirra landa sem taka þátt í HM-mótum þeirra á nk. ári. Að sjálfsgöðu vantar enn röðunina á liðin i efstu deild þar sem keppnin þar stendur nú yfir í þessum skrifuðu orðum. En lítum nánar á það sem lesa má út úr töflunni frá IIHF. Ánægjulegu fréttirnar eru þær að íslenska liðið hækkar sig um þrjú sæti á listanum en svo ofarlega hefur liðið aldrei komist áður. Þessu er mest að þakka góður árangur liðsins í Novi Sad á nýliðnu HM-móti.
Ef við tökum út liðin í 2. deild þá lítur röðin svona út:
1. |
Ástralía |
2. |
Rúmenía |
3. |
Eistland |
4. |
Belgía |
5. |
Spánn |
6. |
Kína |
7. |
Ísland |
8. |
Búlgaría |
9. |
Mexíkó |
10. |
Ísrael |
11. |
Nýja-Sjáland |
12. |
Tyrkland |
Íslenska liðið er komið um miðja deild sem verður að teljast góður árangur hjá liði sem árið 2006 var í þriðju deild.
Þegar kemur að niðurröðun í riðla fyrir næsta HM sem haldið verður 2010 gæti hún orðið á þennan hátt:
A-riðill |
B-riðill |
|
|
Ástralía |
Rúmenía |
Belgía |
Eistland |
Spánn |
Kína |
Búlgaría |
Ísland |
Mexíkó |
Ísrael |
Tyrkland |
Nýja-Sjáland |
|
|
Við viljum þó taka fram að enn er þetta fyrirvörum háð en eins og staðan er í dag er þetta líklegasta niðurstaðan. Breyting á styrkleikaröðun eins liðs gæti þó breytt miklu þessu dæmi en endanlega niðurstaða ætti að vera komin um 10 maí nk.
Myndin er í eigu Péturs Maack.
HH