17.01.2008
Í þriðjudagskvöldið fór fram Derby-leikur í Höfuðborginni þegar Skautafélag Reykjavíkur og Björninn mættust í Íslandsmótinu í meistaraflokki karla. Leikurinn var jafn í upphafi og öll teikn á lofti um jafnan og spennandi leik en eina mark fyrstu lotu skoruðu SR-ingar.
Í næstu lotu fór SR er að síga framúr og jók forystu sína í 5 - 1 og bættu svo enn um betur og skoruðu 4 mörk í þriðju og síðustu lotunni og unnu 9 - 1 sigur. Heldur óvænt úrslit í ljósi jafnra viðureigna milli liðanna í vetur. Loturnar fóru þá (1-0),(4-1) og (4-0).
Mörk og stoðsendingar:
SR: Gauti Þormóðsson 2/2, Daniel Kolar 2/1, Egill Þormóðsson 1/2, Pétur Maack 1/1, Martin Soucek 0/1, Kári Valsson 1/0, Ragnar Kristjánsson 0/1, Þorsteinn Björnsson 0/1, Andri Þór Guðlaugsson 1/0, Steinar Páll Veigarsson 0/1, Stefán Hrafnsson 0/1, Þórhallur Viðarsson 0/1.
Björninn: Daði Örn Heimisson 1/0, Birgir Jakob Hansen 0/1.