05.02.2006
Í gærkvöldi mættust á Akureyri Skautafélag Akureyrar og Björninn í 2. flokki. Heimamenn báru að þessu sinni sigur úr býtum með fjórum mörkum gegn tveimur. Þetta er í annað sinn sem þessi lið mætast í vetur en fyrri viðureign liðanna lauk með sigri Bjarnarins. Tölulegum upplýsingum um leikinn verður bætt við þegar leikskýrsla skilar sér í hús.