28.12.2009
Skautafélag Akureyrar og Björninn léku í karlaflokki á Akureyri í gærkvöld. Leiknum lauk með sigri Bjarnarins sem gerði 5 mörk gegn 4 mörkum SA-manna. Rúmlega tvö ár eru síðan Björninn bar sigurorð af SA-mönnum og því sigurinn því kærkominn fyrir Bjarnarmenn.
Strax í fyrstu lotu litu 5 mörk dagsins ljós en unglingalandsliðsmaðurinn Brynjar Bergmann kom Bjarnarmönnum yfir snemma í leiknum. Norðanmenn svöruðu hinsvegar með tveimur mörkum frá Rúnari F. Rúnarssyni og Orra Blöndal. Annar ungur leikmaður í liði Bjarnarins, Falur Birkir Guðnason, jafnaði fyrir þá metin en áður en lotunni lauk skoraði Rúnar F. Rúnarsson sitt annað mark og jafnframt síðasta mark lotunnar. Staðan því 3 – 2 SA í vil.
Önnur lotan var öllu rólegri en hvort lið gerði eitt mark í henni. Trausti Bergmann gerði mark Bjarnarmanna. Rúnar F. Rúnarsson fullkomnaði hinsvegar þrennu sína með marki fyrir SA og staðan því 4 – 3 eftir tvær lotur.
Bjarnarmenn tryggðu sér hinsvegar sigurinn með tveimur mörkum í síðustu lotu en þar voru á ferðinni Trausti Bergmann og Matthías Skjöldur Sigurðsson. Fyrrnefndur Trausti hefur verið að koma sterkur inn í síðustu leikjum Bjarnarins og komið með góð mörk á mikilvægum augnablikum.
Mörk/stoðsendingar SA:
Rúnar F. Rúnarsson 3/0
Orri Blöndal 1/0
Jón B. Gíslason 0/2
Andri Freyr Sverrisson 0/1
Björn Már Jakobsson 0/1
Refsimínútur: 68 mín.
Mörk/stoðsendingar Björninn:
Trausti Bergmann 2/0
Brynjar Bergmann 1/0
Falur Birkir Guðnason 1/0
Matthías S. Sigurðsson 1/0
Úlfar Jón Andrésson 0/1
Brynjar F. Þórðarson 0/1
Hjörtur G. Björnsson 0/1
Refsimínútur Bjarnarins: 24 mín.
HH