29.02.2008
Í kvöld mættust á Akureyri SA og Björninn í kvennaflokki. Ólíkt fyrri viðureignum vetrarins var þessi leikur jafn og spennandi framan af en staðan var 2 - 2 fram á 47. mínútu en þá kom sigurmarkið frá Söruh Smiley og skömu síðar innsiglaði Guðrún Blöndal sigurinn. Loturnar fóru 1 - 0, 1 - 2 og 2 - 0.
Með þessum sigri tryggði SA liðið sér Íslandsmeistaratitilinn en liðið hefur ekki tapað leik í vetur. Tímabilinu er þó hvergi nærri lokið því fjórir leikir eru enn eftir.
Mörk SA: Guðrún Blöndal 2/0, Sólveig Smáradóttir 1/0, Sarah Smiley 1/0, Birna Baldursdóttir 0/1, Anna Sonja Ágústsdóttir 0/1.
Mörk Bjarnarins: Hanna Rut Heimisdóttir 2/0.
Dómari leiksins var Andri Magnússon og línumenn Leonard Jóhannsson og Dúi Ólafsson.