Niðurstaða áfrýjunardómstóls
22.04.2008
Í dag
var birtur úrskurður áfrýjunardómstóls ÍSÍ í máli Skautafélags Akureyrar gegn
Skautafélagi Reykjavíkur. Málið snerist um að Skautafélag Akureyrar taldi að
Skautafélag Reykavíkur hefði notað ólöglegan leikmann, Emil Alengaard, í fyrsta
leik liðanna í úrslitakeppni íslandsmótsins í íshokkí. Áfrýjunardómstóll
komst að sömu niðurstöðu og dómstóll ÍSÍ, þ.e. að fyrrnefndur leikmaður teldist
ólöglegur. Leikurinn dæmdist því tapaður fyrir SR. Úrskurðinn
áfrýjunardómstólsins má sjá hér.
HH