02.04.2005
Kvennalandslið Íslands spilaði í nótt við Rúmeníu á heimsmeistaramótinu í íshokkí. Leikurinn var í járnum í 1. lotu en eitthvað gáfu þær íslensku eftir í 2. lotu því þá skoruðu þær Rúmesku tvö mörk. Eitt mark var dæmt af íslenska liðinu sem setti strik í reikninginn en í 3. lotunni náði hvorugt liðið að skora og því lokastaðan 2 - 0.
Stelpurnar börðust vel og sýndu á köflum mjög góðan leik, en betur má ef duga skal. Næsti leikur verður gegn heimamönnum, Nýsjálendingum á mánudaginn.