16.12.2005
Á Akureyri fer fram í kvöld viðureign SA og Bjarnarins og hefst leikurinn kl. 21:30. Þetta mun vera í fjórða skiptið sem liðin mætast í vetur. Björninn vann fyrsta leikinn örugglega, sem fram fór á Akureyri en SA svaraði með tveimur sigurleikjum í röð í Egilshöllinni í síðasta mánuði. Leikur kvöldsins verður án efa spennandi en aðaldómari leiksins er Jens C. Fossaberg frá Danmörku.