02.11.2005
Skautafélag Akureyrar tekur á móti nágrönnum sínum frá Hrísey á fimmtudagskvöld kl. 20:00. Liðin hafa mæst í tvígang í vetur. Í fyrri viðureigninni þurfti framlengingu til að skera úr um sigurvegara en þá vann SA með gullmarki frá Clark McCormick. Þeirri síðari lauk með 5 - 1 sigri SA.
Viðureignir liðanna eru venjulegar líflegar en vel spilaðar og því um að gera fyrir íshokkíáhugamenn að skella sér í Skautahöllina á Akureyri og skemmta sér yfir góðum hokkíleik.
Mynd: Ási ljósmyndari