28.03.2006
ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann
Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild til handa Jóni Gíslasyni. Jón hefur það sem af er tímabili leikið með Nordic Vikings í Asíudeildinni en hefur nú ákveðið að snúa heim og leika með sínu gamla liði. IIHF hefur staðfest flutning leikmannsins og SA hefur greitt inn á reikning ÍHÍ kostnaðinn við flutninginn ásamt félagaskiptagjaldi. Það staðfestist því hér með að Jón Gíslason er löglegur leikmaður með Skautafélagi Akureyrar frá deginum í dag 28. mars 2006 að telja.
Viðar Garðarsson
fom. ÍHÍ