23.09.2008
ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmenn:
Fyrir Skautafélag Reykjavíkur, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 19. september (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Daniel Kolar. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 19. október 2008. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.
Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.
HH