26.02.2008
Þær ánægjulegu fréttir voru að berast í hús að tveir leikmenn hafa bæst í landsliðshópinn. Þar er um að ræða tvo íslenska bræður sem búið hafa í Svíþjóð og æft og spilaði íshokkí frá ungaaldri. Þeir heita Dennis og Robin Hedström, Dennis er markmaður en Robin sóknarmaður. Dennis kemur þá inn í landsliðið og ver markið með Ómari Smára Skúlasyni en Robin kemur sterkur inn í sóknina, en hann spilar í efstu juniora deild í Svíþjóð.
Dennis er fæddur árið 1987 og Robin árið 1989 og það er næsta víst að þeir munu styrkja landsliðið umtalsvert í komandi átökum í Ástralíu í apríl.