29.09.2006
Alþjóða Íshokkísambandið hefur nú staðfest að Heimsmeistaramót kvenna í 4. deild muni fara fram, og keppnisstaður að þessu sinni er Rúmenía. Ísland keppir nú í 4. deild ásamt fimm öðrum þjóðum; Nýja Sjálandi, Rúmeníu, Króatíu, Tyrklandi og Eistlandi. Keppnin mun fara fram í litlum bæ í norðurhluta Rúmeníu, Miercurea Ciuc, sem er að sögn gestgjafanna Mekka íshokkííþróttarinnar í landinu.
Keppnin mun fara fram dagana 26. Mars – 1. Apríl 2007 og leikjaskrá íslenska liðsins er sem hér segir;
26. mars Ísland – Nýja Sjáland
27. Mars Ísland – Rúmenía
28. Mars Frídagur
29. Mars Ísland – Króatía
30. Mars Ísland – Tyrkland
31. Mars Frídagur
1. Apríl Ísland – Eistland
Þetta mun verða í annað skiptið sem Ísland sendir kvennalið á Heimsmeistaramót en síðast keppti liðið fyrir tveimur árum síðan í Nýja-Sjalandi. Mótið verður án efa spennandi og reikna má með jöfnum viðureignum.