Nú er aðeins farið að koma í ljós hvert landslið okkar fara á næsta ári og hér á eftir kemur upptalning á því. Ekki er ólíklegt að landsliðsferðum fari eitthvað að fækka en breytingatillögur þess efnis verða ræddar næsta haust.
En að landsliðunum og byrjum á karlalandsliðinu sem á erfiða ferð og erfiðan riðil fyrir höndum. Farið verður til
Novi Sad í Serbíu og í riðlinum eru:
1. Eistland
2. Kína
3. Serbía
4. Ísrael
5. Ísland
6. Norður Kórea
Enginn hefur enn sótt um riðilinn sem kvennaliðið á að keppa í en riðillinn er svona skipaður:
1. Ástralía
2. Slóvenía
3. Króatía
4. Belgía
5. Ungverjaland
6. Ísland
Þá er það U20 liðið en ekki hefur verið sótt um þar heldur. Riðillinn er svona skipaður:
1. Ísland
2. Kína
3. Ástralía
4. Suður-Afríka (ólíklegt að þeir verði með)
5. Tyrkland
6. Búlgaría
7. Norður-Kórea
Að síðustu er það U18 ára liðið okkar. Þar verður haldið yfir hafið, þ.e. til Írlands og í riðlinum eru:
1. Ísrael
2. Ísland
3. Tyrkland
4. Búlgaría
5. Írland.
Látum þetta duga í bili en uppfærum fréttir af keppnunum um leið og þær berast.
HH