|
Óskað hefur verið eftir félagaskiptum fyrir eftirtalda leikmenn Rúnar Frey Rúnarsson og Sigmund Rúnar Sveinsson frá SR til SA og fyrir Kristján Eldjárn Kristjánsson frá Narfa til SA SR og Narfi hafa bæði staðfest skuldleysi leikmannanna við sín gömlu félög og félagaskiptagjöld hafa verið greidd til ÍHÍ. Leikmennirnir eru því löglegir með sínum nýju félögum. |