04.04.2006
Björninn og Narfi sem leika munu til úrslita um 3. sætið hafa komist að samkomulagi í samvinnu við mótanefnd um breytingu á dagskrá leikja. 1. leikur átti að fara fram í kvöld þriðjudag en sá leikur hefur verið færður fram á föstudagskvöld kl. 21:30. 2. leikur sem fram átti að fara á Akureyri n.k. laugardag hefur verið færður suður í Egilshöll. Tímasetning laugardagleiksins verður auglýst síðar.