25.01.2006
Í kvöld áttust við í Egilshöll Björninn og SR, fyrirfram var búist við hörku leik og búist var við að nokkur spenna yrði í Grafarvoginum. Það varð ekki raunin. Bjarnarliðið náði sér aldrei fyllilega á strik og SRingar höfðu leikinn í höndum sér allan tímann og yfirspiluðu Bjarnarliðið algerlega. Nánar verður skrifað um leikinn á morgun.