07.09.2008
Asetamótið fór fram í gærkvöld í Egilshöll. Að þessu sinni var spiluð einföld umferð og hver leikur var 2 x 20 mínútur. Úrslitin urðu:
Björninn - SA 2 - 3
Björninn - SR 1 - 3
SA - SR 2 - 2 (2 - 1)
Fyrir síðasta leik var vitað mál að hann væri úrslitaleikur. Leikurinn endaði einsog sjá má í jafntefli og þar sem úrslit skulu ráðast var farið í vítakeppni. Tekin voru þrjú víti á lið og enn var staðan jöfn þar er bæði liðin skoruðu úr einu víti. Var þá haldið áfram í bráðabana og þar tryggðu norðanmenn sér sigurinn. Bæði lið lögðu sig því vel fram og segja má heilt um mótið að menn hafi komið nokkuð vel undirbúnir til leiks. Hraðinn í leikjunum öllum var ágætur og margir ungir leikmenn sýndu hvað í þá er spunnið. Því er ekki ástæða til annars en að halda að á komandi íslandsmóti verði leikið hratt og gott hokkí.
Myndin er tekin af Söru Smiley þjálfara SA sem að sjálfsögðu var kát með sigurinn.
HH