01.02.2011
Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik SA Jötna og Bjarnarins í meistarflokki karla sem leikinn var þann 29.01.11.
Leikmaður Bjarnarins nr. 8 , Trausti Bergmann hlaut brottvísun úr leik fyrir óíþróttamannslega framkomu.
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.
Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik SA Jötna og Bjarnarins í meistarflokki karla sem leikinn var þann 29.01.11.
Leikmaður Bjarnarins nr. 32 , Sigursteinn Atli Sighvatsson hlaut brottvísun úr leik fyrir óíþróttamannslega framkomu.
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.
Fh. aganefndar
Viðar Garðarsson
formaður