Mikið um að vera um helgina

Það er mikið um að vera í íshokkíheiminum þessa helgi á Akureyri eru æfingabúðir fyrir karla landsliðið okkar og svo leika Narfi og SR bæði á laugardegi klukkan 17:00 og svo aftur á sunnudagsmorgni klukkan 10:00.

í Reykjavík er Old Boys eða Gull-drengja mót þar sem að Björninn, SA og SR tefla fram leikmönnum sínum á besta aldri. Í þessu móti tekur þátt kvenna landslið Íslands sem er að æfa sig fyrir heimsmeistaramót kvenna í 4 deild sem leikið verður á fyrstu dögum apríl.

Gull-drengja mót þetta er ekki á forræði ÍHÍ og því miður höfum við ekki upplýsingar um leikjaröð eða leiktíma. 

Til að rýma fyrir móti Gull-drengja, sem um leið eru mikilvægir æfingaleikir fyrir konurnar, verður að fresta síðasta leik Bjarnarins og SA í kvennaflokki og um leið þá leik Bjarnarins og SA í 3. flokki.