Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur í sér daglegan rekstur sambandsins og samskipti við aðildarfélög ÍHÍ auk ýmissa starfa í nefndum sambandsins. Leitað er eftir drífandi og sjálfstæðum einstaklingi sem fer vel að vinna með öðrum og hefur brennandi áhuga á að starfa í íþróttahreyfingunni. Um er að ræða hlutastarf á ársgrundvelli sem er krefjandi en býður jafnramt upp á sveigjanlegan vinnutíma.
Helstu verkefni Daglegur rekstur ÍHÍ
Bókhaldsvinna
Starfa með stjórn ÍHÍ
Starfa með nefndum ÍHÍ
Starfa með aðildarfélögum ÍHÍ
Samskipti við fjölmiðla
Menntunnar- og hæfniskröfur Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi
Frumkvæði og skipulagshæfni
Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg
Umsækjendur eru beðnir um að skila umsóknum með tölvupósti til ritara stjórnar á netfangið
siggi@kaupa.is fyrir 10. ágúst 2006.
Stjórn sambandsins áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.