Hertz-deild karla í íshokkí heldur áfram með látum þriðjudagskvöldið 8. nóvember. Skautafélag Reykjavikur mun rúlla norður fyrir heiðar og heimsækja Skautafélag Akureyrar. Leikurinn hefst kl. 19:30 og eigum við von á hörkuspennandi leik í Skautahöllinni Akureyri. Skautafélag Akureyrar stefnir á að blanda sér í toppbaráttu deildarinnar og heyrst hefur að Skautafélag Reykjavikur ætli sér ekki að sitja eftir og munu því mæta grimmir til leiks. Í Reykjavik mun Björninn heimsækja UMFK Esju í Laugardalinn og hefst sá leikur kl 19:45. Esja er enn ósigrað lið á þessari leiktíð og vermir toppsætið. Með sigri Bjarnarins gæti staðan á toppnum breyst og er því spennandi þriðjudagskvöld framundan.
Stefnt er að því að streyma báðum leikjum hér á heimsíðu Íshokkísambandsins og einnig tölfræðilýsing (Hydra) á sama stað.
Aðgangseyrir er kr. 1000.- Kaffi og meðlæti til sölu. Mætum hress og kát, áfram íshokkí.
Staðan í deildinni:
Fj. Leikja | Unnið | OTW | OTL | Tap | Stig | |
Esja | 6 | 3 | 3 | 0 | 0 | 15 |
Björninn | 6 | 3 | 1 | 1 | 1 | 12 |
SA | 6 | 1 | 0 | 2 | 3 | 5 |
SR | 6 | 1 | 0 | 1 | 4 | 4 |